
#1 Einungis gatan sjálf sem tekur við af göngustígnum út í Hlégerðið. Tel mikilvægt að finna lausn á því þar sem nýtt svæði dregur að aukna notkun ungra vegfarenda. Börn hjóla/hlaupa niður hallann á fullri ferð beint út á götu. #2 Lausir hundar með eigendum sínum valda því að svæðið nýtist ekki öllum og nú þegar sniðgengur fólk túnið vegna þess. Aftur á móti má mæta hundaeigendum með uppsetningu ruslatunnum við göngustígana inn á svæðið. Takk fyrir að endurgera Stelluróló.
Við göngustíginn Hlégerðismegin er á aðra hönd hátt grindverk sem birgir sýn þegar farið er út stíginn þar sem ekkert tekur við nema gatan, einnig er beygjan í götunni þar rétt við og því miður eru hraðamörk sjaldan virt í götunni. Það ætti að gera ráðstafanir til að hægja á umferðinni sérstaklega neðst þar sem þarf að fara yfir götuna á næstu stíga að Kópavogsbraut og Suðurbraut.
Varðandi göngustíginn, væri ekki til bóta að hafa vinkilbeygju þegar komið er inn í garðinn, það ætti að hægja á öllum. Svo mætti hugsa sér að hafa skilti um sögu Stelluróló sem blasa við þegar inn er komið. Bak við skiltin væri svo smá brekka með "árekstrarvörn" þannig að sleðar nemi þar staðar, en geti ekki runnið út á götuna.
Lausaganga hunda ætti að vera bönnuð á Stelluróló. Það eru bara margir sem eru hræddir við hunda, t.d. litlir krakkar.
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation